Framtíðarsýn

Hjá Samkaupum gerum við hlutina á fyrirfram skilgreindan hátt. Við förum alla leið. Fyrir viðskiptavini okkar, starfsfólk og nærsamfélag: Til að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Við erum með verslanir um allt land – sem tengja allt saman – og í stað þess að líta á ábyrgð sem kvöð höfum við gert hana að markmiði.

Breytum heiminum

Samkaup eru eitt öflugasta fyrirtækið á Íslandi, með einstakan hóp starfsmanna sem í sameiningu getur allt, segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs. „Hamingja, gleði og vinátta eiga heima á öllum vígstöðvum samfélagsins og ég tel þetta vera forsenda þess að fólki líði vel. Ef við hjá Samkaupum sköpum menningu þar sem ríkir jafnrétti og fordómaleysi, þá stígum við skref í rétta átt að því að skapa gott samfélag þar sem hamingja fólks er í fyrirrúmi.“ 

Gunnur bætir við: „Það er einlæg von okkar hjá Samkaupum að þessi víðtæka stefna og aðgerðir sem ráðist hefur verið í veki eftirtekt í samfélaginu og reynist öðrum fyrirtækjum hvatning til að fara sömu leið. Þannig vonumst við til að Samkaup verði jákvætt afl í samfélaginu og geti jafnvel tekið þátt í að breyta heiminum í vissum skilningi.“

Förum alla leið

„Það er spennandi vegferð framundan. Ég hlakka til að fylgja eftir stafrænni þróun og sjálfvirknivæðingu í þjónustu og starfsemi Samkaupa. Þá vil ég auka enn frekar áherslur okkar á samfélagslega ábyrgð og halda áfram að gera Samkaup að frábærum vinnustað,“ segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.

„Það er framlag okkar til fólks og samfélags sem hvetur okkur áfram. Þannig vinnum við og það skapar okkur sérstöðu, til dæmis með því að vera tæknilega fremst í verslunarháttum. Fyrirtækið okkar byggist á metnaði fólks sem leggur alltaf sérstaka áherslu á að bjóða upp á sem mest gæði og sífellt betri þjónustu á hverjum degi. Allt frá bændum til afgreiðslufólks er okkar sameiginlega markmið að gera ábyrga smásöluverslun að leiðinni til framtíðar. Ef það þýðir að við þurfum að fara skrefinu lengra, þá gerum við það. 

Hjá Samkaupum förum við alla leið.“